Fun House
Talking Heads:
03.10.2007 11:35:46 / vignira

Blood & Chocolate

Enn rekur maður sig á að fólk sé að taka Forrest Gump spekina um að lífið sé eins og kassi af súkkulaði sem einhverskonar lífsgildi. Já, einfeldingurinn sá taldi það algerlega óvíst hvað maður fengi úr súkkúlaðikössum... 

...gleymum því ekki að einfeldingar taka bara það sem hendi er næst, við hin vitum að það er hægt að lesa neðan á kassanum hvað er í hverjum mola.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 17:45:29 / vignira

Konungleg gæfa um allt

Magnað að sjá hér að sjö einstaklingar lásu þessa síðu í dag, þrátt fyrir að hér hafi ekki birst nýr stafur um óratíð, það minnir mig á bók sem ég las einu sinni, eða var það bók?, það gæti hafa verið ekki neitt...


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 16:20:26 / vignira

Komið að lokum...

Jæja, nú er kominn tími á að láta af þessu bloggi. Hef ég nú fengið nýja málpípu gegn um nýja atvinnu og mun þar svala tjáningarþörf minni...

Ég minni á : www.myspace.com/royalfortune

Sjáumst í raunveruleikanum...


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 00:48:50 / vignira

Leader of the Pack

Andskotinn, óþolandi hve einn millimetri getur munað miklu þegar maður er að reyna að skipta um stýrisvökvaleiðslu með 19 millimetra lykli en nr. 18 er sá rétti, þar skiptir þessi agnarmælieining sköpum og útheimtir heljar útréttingar og vesen...

Það sem verra er að ein vitlaus smelling á tölvumús getur eyðilagt fyrir manni daginn. Þannig er mál með vexti að ég ætlaði að spara mér aur með því að vera með Hive Lite (einnig til að hemja download-geðveikina), en það þýðir þá takmörkun á niðurhali og verð ég því að hugsa mig vel um áður en ég vel downloadið...

Í kring um áhuga á geðveiki Phil Spectors, sem eitt sinn otaði byssu að hálsi Leonard Cohen og sagði "I love you, Leonard", langaði mig til að ná í Leader of the Pack með Shangri-La's. Þó að hann hafi svo sem ekki verið með puttana á tökkunum, hef ég nokkurn áhuga á tímabilinu...

Fann ég lagið inn í 100 laga torrent sem hét "100 Golden Love Songs", en í stað þess að velja bara Leader of the Pack, valdi ég öll lögin NEMA Leader of the Pack!

Nú á ég 543 mb af einhverjum þeim verstu lögum sem samin hafa verið frá upphafi mannkyns; Michael Bolton, Scorpions, Phil Collins og fleiri góðir fylla nú 1/8 af download kvóta maímánaðar...


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 09:14:43 / vignira

You should be in my space!

"Myspace" segir Murdoch og við eltum; kíkið á www.myspace.com/royalfortune


Joanna Newsom var yndisleg, nýju lögin voru einstök og allir vilja giftast henni...

Cocorosie voru líka frábærar og yndislegar, en ég veit ekki hvort ég myndi vilja giftast þeim...


Lög dagsins: The Bleeding Heart Show - The New Pornographers

Sawdust and Diamonds - Joanna Newsom - þetta lag verður að ég held á nýju plötunni og ætti hún því samkvæmt að verða meistaraverk...

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 15:26:04 / vignira

Monkís í Pakkhúsið! Monkís í bæjarstjórn!

19. og 20. maí

Tékkneski íþróttamaðurinn knái Šárka Kašpárková verður 35 ára á laugardaginn og hafa því Monkís ákveðið að halda henni "tribute" tónleika þar sem apakettirnir munu leika eftir hennar helstu íþróttaafrek...

Glöggir munu hafa tekið eftir því að dagur þessi hittir skemmtilega á Evróvísíón Söngvakeppnina og hafa Monkís, tileinkað sér alla þá menningu sem til er í kring um það:

Skúli er með Silvíu taktana á hreinu

Skúli hefur stúderað framkomu Sylvíu Nætur eins og sjá má á þessari mynd

Monkí 3 og 4 munu keyra bláedrú yfir heiðina og láta alla ljósastaura á Sæbrautinni í friði með helling af júróvísíón lögum í farteskinu. Monkí2 hefur beðið eftir að fá tilefni til að taka "Draumur um Nínu" í fimmtán ár, eða alveg síðan hann samdi það.

Allir í Pakkhúsið!



» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 11:02:35 / vignira

Trout Mask Replica

Mascara Snake: "Fast and bulbous!"
Captain Beefheart: "That's right The Mascara Snake, fast and
bulbous,...
...tight, also."
MS: "Bulbous also tapered!"
CB: "Yeah, but you gotta wait 'till I say; 'Also a tin
teardrop'."
MS: (Laughing) "Christ!.."
MS: "Fast and bulbous!"
CB: "That's right the Mascara Snake, fast and bulbous,...
...tight, also!"
"Also a tin teardrop"
MS: "Bulbous also tapered!"
CB: "That's right!"
--Captain Beefheart and his Magic Band

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 19:31:24 / vignira

?

"Þar var farþeginn, sem ekki er skráður eigandi bílsins, undir stýri og er hann jafnframt grunaður um ölvun."

-tekið af mbl.is

Þetta ku hafa verið uppáhald Árborgar sem um er rætt, en ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvernig þessi akstur fór eiginlega fram... þar til nú hef ég talið að farþegar væru einmitt ekki með stjórn ökutækja á sinni ábyrgð...


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 18:46:44 / vignira

Ever get the feeling you've been cheated?

Meðan ég man, hvaða fjandans dónaskapur er það að rukka um og yfir þúsund krónur aukreitis fyrir "stúkusæti" í Laugardagshöll?

Eftir breytingarnar er varla nokkur stúka til að tala um og má sem dæmi nefna á Manchester tónleikunum hér um daginn sat ég eins og fífl með neongrænt armband sem ég hafði fjárfest í þeirri trú að það væri betra á einhvern hátt, en allir í kring um mig í "stúkunni" var fólk með ómerkilegar appelsínugular druslur á úlnliðnum.

Helber dónaskapur, segi ég og vara fólk jafnframt við þessum svikum!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 22:53:09 / vignira

Vicarious

Sjónvarpsgláp mitt að undanförnu hefur einskorðast við "stolið" efni; 24, family guy, south park, sopranos, scrubs... þið vitið góða stuffið. Netvæðing mín gerir það að verkum að margir dagar líða á milli þess að ég kveiki á sjónvarpinu og þá helst til að horfa á fréttir...

En nú er ég á kvöldvakt í vinnunni og var að horfa á stöð 2 þar sem tjallapakk, sem taldi sig vera í sambandi við þá framliðnu, freistaði þess að ná sambandi við "anda" Frank Sinatra.

Þær tíu mínútur sem skapgerð mín leyfði mér að sjá af þættinum, sýndu þegar einn tjallinn skoðaði hótelsvítu sem Sinatra gisti "oft" í í Las Vegas, að áeggjan kollega síns vogaði hann sér að eyða nóttinni þar!

Þegar búið var að setja "night-vision" filterinn á myndavélina, setja góðan bassa og hryllingsmyndatónlist, zúmað alveg upp að andlitinu á fíflinu, segir hann um miðja nóttina : "I definitly feel something, but I'm not afraid!"

Hvers vegna ætti hann að vera óttasleginn? Hvern fjandann ætti Frank Sinatra að vera hanga á einhverju hótelherbergi í Las Vegas?

Lög dagsins:

I Have Been Floated - The Olivia Tremor Control

(David Bowie I love you) Since I Was Six - The Brian Jonestown Massacre

Það er nákvæmlega ekki neitt að þessum lögum...


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 01:47:26 / vignira

Bring on the Dancing Horses

Sem og ég er Post-Punk Indie karl fór ég á Echo & the Bunnymen í kveld og þótti mikið til. Þar var rennt í af mikilli sannfæringu í slagara á borð við Bring on the dancing Horses, Rescue og The Killing Moon við ágætis undirtektir þeirra fimmtíu manna sem við lögin könnuðust og fimmtíu í viðbót sem fíluðu taktinn.

Mikill töffaraskapur var á Ian McCullogh, en hann virtist hafa samið um að ljósadýrð hallarinnar skini aldrei á hans persónu og söng mest úr myrkrinu við ljós glóðar sígarettu sinnar. Hann var í góðu formí; tónviss og skilaði sínu trademark hæsi og karakter í röddu lýtalaust.

En hápunkti var náð að mínu mati í sleggjunni Villiers Terrace, mikið töffara lag og flottheit sem runnu svo út í Roadhouse Blues með enn meiri kúlheitum.

The Cutter lokaði svo settinu fyrir uppklapp og fékk Post-punkarastrákurinn gæsahúð er þar var komið...

Nothing Lasts forever lokaði svo settinu og rann á undarlegan hátt út í pervertisma Lou Reed; klæðskiptinga og portkvenna sem gengu hinn villta veg...

Svo komu einhver fleiri atriði...

Elbow... bíddu við eitthvað rámar mig í það...

Badly Drawn Boy var hress og alþýðulegur, var yfirlætislaus og vel spilandi. Trommarinn fór hvað helst á kostum, en prýðistónleikar frá þeim ágæta manni.

En Echo & the Bunnymen áttu kvöldið að sjálfsögðu, enda aðalástæðan fyrir veru minni á þessum tónleikum, enda post-punkari...


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 11:13:00 / vignira

(David Bowie I love you) Since I was Six


Helvítis motherbitch! The Brian Jonestown Massacre eru að spila í Köben helgina áður en við lendum!

Mig sem langaði að láta sparka í andlitið á mér...


You Know Yer Indie. Let's Sub-Categorize.

You're a Post-Punk. You know 70s punk was cool, but it was mostly just a stepping stone for the greater intellectualism of what would come after. The 80s were amazing. You quite possibly have huge hair, and may wear lots of black. Snare drums need reverb. Lots and lots of reverb.
Take this quiz!

Quizilla | Join | Make A Quiz | More Quizzes | Grab Code
Próf sem virkar!

Heyrir þú það Skúli? Lots and lots of reverb!


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 13:15:21 / vignira

How Many Dead are Alive?

Mig langar til að benda gestum þessarar síðu sem einhvern áhuga hafa á tónlist á að nýverið komu út endurútgáfur á fyrstu þremur plötum hljómsveitarinnar Wire!

Photobucket - Video and Image Hosting

Nú spyrja þeir sig sem ekki þekkja til: "Wire, hvað er nú það og hvers vegna ætti ég að vera að spá í því?"

Fyrir það fyrsta þá er þetta ekkert nema frábær frumkvöðlamúsík.

Í öðru lagi þá þykir töff að fíla þá, þannig að ef þið eruð stödd á kaffihúsi með Singapore Sling, Ghostdigital og Dr. Gunna og vitið ekkert hvað skal segja, þá gæti maður sagt: "hvernig er það, þið eruð væntanlega kunnugir hljómsveitinni Wire?" þá mun opnast flóðgátt af umræðuefnum og þið munuð umsvifalaust teljast merkilegar persónur mjög. Þannig mætti ræða um stórfenglegt gítarsánd á "a touching display", magnaða poppsmíð "Mannequinn" og "the 15th", beitta texta "Reuters" og "Pink Flag" og þannig fram eftir götunum...

Í þriðja lagi þá gætu þessir dómar frá Pitchfork sannfært ykkur um ágæti þessara mætu verka : Pink Flag / Chairs Missing / 154

Rating: 10.0 / 10.0 / 9.1 Ekkert slor það!


Hér ætla ég að vera með smá dýralífshorn og kynna fyrir fólki þennan hressa gaur:

Photobucket - Video and Image Hosting

Skúli, Þráinn og Sibbi vita um hvað málið snýst!


Annars er alltaf fróðlegt að skoða færslur á heimabankanum sínum, ekki síst til að pynta sig með því að skoða færslur af ölkelduhúsum hér í borg.

En mér var hve mest brugðið þegar ég sá að ég hafði víst straujað kortið fyrir tæpar tólfþúsund krónur í Vouge!

Þetta kannast ég ekki við!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 12:05:57 / vignira

I Feel Alright

Aldrei hefði mig grunað að ég hefði nokkur einasta áhuga á að snerta bera og kófsveitta karlmenn, en jú, ég þuklaði á einum slíkum í gær og mér líður bara hreint ekkert verr fyrir vikið.

Iggy Pop var maðurinn, hafnarhúsið var staðurinn, I Wanna Be Your Dog var lagið, stage-dive var málið...

Við Skúli brostum eins og fífl þegar Iggy henti sér yfir okkur og við þukluðum hann upp og niður, þó í þeim tilgangi að halda honum á lofti.

Iggy leit seinna á mig og spyr "you got something to say?" eftir að hafa gripið mækinn fimlega, réðist ég beint að rótum rokksins, í frumeðli okkar, dýrið sem rokkið kallar fram í okkur og gaf gestum Hafnarhússins eitt langt og gott stuðöskur.

Skúli gólaði eitthvað í mækinn áður en ég skutlaði honum aftur til meistarans, en hann hvaðst undrandi að svona tjáning kæmi frá landi "with the highest literacy rate"...

En þetta var allt aukaatriði, helvítis lögin og krafturinn, ekkert nema The Stooges og Fun House, og nokkur ný lög, þið sem ekki voruð þarna munuð eiga erfitt með að réttlæta fjarveru ykkar af einum af bestu tónleikum síðan (setjið inn hér uppáhaldstónleika ykkar)!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 10:20:33 / vignira

Sjónvarpsaugað

Niðri á götu

þar sem skín í andlitin

ég læt mig líða í gegn

með saurugar hugsanir

 

sé fallegan hlut - enginn veggur

enginn veggur

enginn veggur

 

já, djúpt í nóttinni

ég er týndur í ástinni

þúsundir ljósa

lít á þig

er týndur

 

andlitin skína, saurugar hugsanir

ég hef saurugar hugsanir

saurugar hugsanir

saurugar hugsanir

kannski ekki allir sem kannast við skáldið, ég læt fylgja með þekktara ljóð eftir meistarann

Er í tómu rugli

Og þarfnast þín hér

Í herbergið mitt

Nálægt mér

Nú munu andlit okkar mætast

Er ég leggst í mína uppáhalds stellingu

Nú vil ég vera hundurinn þinn!

Photobucket - Video and Image Hosting

 

Ef að þú ert ekki að fara á Iggy & the Stooges og telur þig vera áhugamann um rokktónlist, þá þarft þú að kaupa þér Fun House hið snarasta áður en það verður of seint!


Annars er gaman að segja frá því að gegn allsvakalegum greiða, var fyrrnefnt "I Wanna Be Your Dog" tekið á Pakkhúsinu á laugardaginn við miklar undirtektir u.þ.b. fimm manna þar inni. Þó að stúlkurnar hafi ekki fundið takt til að dilla sér við í laginu, tel ég þó að Leifur neyðist til að læra hinn kaflan ef beðið verður um lagið aftur.

En sá mæti maður þ.e. Leifur á hins vegar afmæli í dag og óska ég honum til hamingju með það. Í tilefni dagsins splæsti ég á aðalapaköttin spánýrri skyrtu og má hér sjá mynd af honum að máta hana:

Photobucket - Video and Image Hosting

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10